Google Classroom
GeoGebraGeoGebra Classroom

Ýmis ráð fyrir Algebruglugga

Staðfestið smíð

Staðfestið alltaf smíði nýs hlutar í Inntaksreit Algebruglugga með því að smella á Enter takkann.

Gefið hlutum nafn

Skrifið nafn = í Inntaksreit Algebrugluggaframan við algebruinnslátt til að nefna nýja hluti. DæmiP = (3, 2) býr til punktinn P.

Margföldun

Gefa má margföldun til kynna með því að nota stjörnu eða með bili milli þátta. Dæmi: Skrifið a * x eða a x til að margfalda.

Hástafir og lágstafir

GeoGebra er viðkvæm fyrir hástöfum/lágstöfum! . T.d.:
  • Punktar eru nefndir með stórum staf. DæmiA = (1, 2)
  • Vigrar eru nefndir með litlum staf. Dæmiv = (1, 3)
  • Línustrik, línur, hringir og föoll ... eru alltaf nefnd með lágstöfum. Dæmi: hringur c: (x – 2)^2 + (y – 1)^2 = 16
  • Breytan x í falli og x og y í jöfnu keilusniða þurfa að vera í lágstöfum. Examplef(x) = 3*x + 2

Reynið sjálf...

Notið hlut í algebruskipun

Ef þú vilt nota hlut í algebruskipun eða skilgreiningu þarft þú að búa til hlutinn fyrst áður en þú notar nafn hans í inslætti. ATH: Ef þú notar nýjar breytur í innslætti mun GeoGebra bjóðast til að búa til rennistikur fyrir viðkomandi breytur. Examples:
  • Innslátturinn y = m x + b teiknar línu þar sem breyturnar eru stuðlarnir m og b (annað hvort. tala eða rennistika).
  • Innslátturinn/skipunin Lína(A, B) gerir línu gegnum skilgreindu punktana  A og B.

Villumeldingar (GeoGebra - Villa)

Ekki sleppa því að lesa skilaboð sem fylgja þegar villur koma upp. Villuskilaboð gagnast oft til að gefa ábendingar um úrbætur þegar þið lendið í vandræðum!