Notkun verkfæra í GeoGebru
Hvað eru verkfæri?
Töflureiknirinn býr yfir verkfærastiku með safni verkfæra sem eru sérsniðin að vinnu í töflureikni. Veldu verkfæri með því að smella á myndina af því á stikunni.
Verkefni
Reiknaðu summu talnaraðar með því að smella á summu tólið.
1. | | Notaðu færa verkfærið til að velja allr tölur í reit B sem innihalda tölur. |
2. | | Veljið Summu tólið í verkfærastikunni. Ath: Summa talnanna sem eru valdar birtist í næsta tóma reit í dálki B. |
Reynið sjálf...
Hvað eru verkfærakistur?
Verkfærum í GeoGebru er safnað í verkfærakistur, sem innihalda verkfæri af svipuðum toga eða verkfæri sem mynda hluti af sömu gerð. Þú getur opnað verkfærakistu með því að smella á verkfæri í verkfærastikunni og velja viðeigandi verkfæri úr listanum sem birtist.
Verkefni
Búðu til lista af punktum úr tölunum í töflureikninum.
1. | | Notaðu Færa verkfærið til að velja allar tölur úr í dálkum B og C niður að röð 6. |
2. | | Veldu Búa til lista af punktum verkfærið úr tækjastikunni og ýttu á Búa til til að búa til punkta úr tölunum. |
| | Ath: Tölurnar í dálki B ákvarða x-hnitin á meðan tölurnar í dálki C ákvarða y-hnit punktanna. |