Google Classroom
GeoGebraGeoGebra Kennslustofan

Flatarmál þríhyrnings

Flatarmál þríhyrnings

Þetta verkefni er unnið út frá vinnublaði Thomas og Adam Antonio sem heitir Area of a Triangle. Notaðu rauðu punktana til þess að ákvaðra grunnlínu og hæð þríhyrningsins/rétthyrningsins. Þú getur líka notað boxin uppi í vinstra horninu til þess að sýna eða fela flatarmál þríhyrningsins og rétthyrningsins. Notaðu formúluna: Grunnlína x Hæð til að finna flatarmál rétthyrningsins. Notaðu formúluna: Grunnlína x Hæð / 2 Til að finna flatarmál þríhyrningsins.

Spurning 1

Settu grunnlínuna í 12 og hæðina í 8 a) Hvert er flatarmál þríhyrningsins? b) Hvert er flatarmál rétthyrningsins?

Spurning 2

Settu grunnlínuna í 20 og hæðina í 16 a) Hvert er flatarmál þríhyrningsins? b) Hvert er flatarmál rétthyrningsins?

Spurning 3

Prófaðu að hreyfa punkt C á línunni. Hvað gerist við flatarmál þríhyrningsins þegar þú hreyfir punktinn?

Spurning 4

Hver er tengingin milli flatarmáls rétthynings og flatarmáls þríhyrnings?

Spurning 5

Prófa þú nú að búa til tvö dæmi um flatarmál þríhyrnings og rétthyrnings og leystu þau.