Breytileg og föst afritun reita
Breytileg afritun
Með breytilegri afritun getur þú auðveldlega búið til talnaraðir eða sett upp formúlu fyrir röð talna.
Verkefni 1
Búum til númeraröð í dálki A.
Verkefni 2
Notaðu breytilega afritun sem vísar í einhvern reit.
1. | A1 | Setjið 1 inn í reit A1 og töluna 2 beint fyrir neðan í reit A2. |
2. | Veljið báða reiti A1 og A2 og dragið litla ferninginn neðst í hægra horninu á reitunum niður að reit A10. | |
Ath: Þið hafið notað breytilega afritun til að gera röð af heiltölum frá 1 til 10 í reiti A1 to A10. | ||
3. | A2 | Breytið tölunni í reit A2 í 3. |
4. | Veljið báða reiti A1 og A2 aftur og dragið litla ferninginn neðst í hægra horninu á reitunum aftur niður að reit A10. |
5. | B1 | Settu stæðuna =A1/2 í reit B1. |
6. | Afritaðu stæðuna frá reit B1 niður að reit B10. Ath: Veljið einungis B1 og dragið þá stæðu niður til að sjá hvað gerist. | |
7. | Tvísmelltu á hvaða reit sem er í dálki B til að sjá hvaða stæða var notuð til að reikna gildið. | |
8. | A2 | Breytið tölunni í reit A2 í 5 og uppfærið tölurnar dálki B Ath Tölurnar í dálki B aðlagast breytingum. |
Reynið sjálf...
Afritun með föstum reit
Ef þú ert að afrita skipun/stæðu milli reita og vilt tengja ákveðinn fastan reit þá þarf að nota dollaramerkið $ við nafnið. Til dæmis festir $C$1 bæði dálkinn (C) og reitinn (1).
Verkefni 3
9. | C1 | Sláið inn töluna 4 í reit C1 . |
10. | B1 | Breytið stæðunni í reit B1 í =A1*$C$1 . |
11. | Fjölritið skipunina/stæðuna í B1 niður að reit B10. Ath: Nú sýnir dálkur B fjórföld gildin úr talnarununni í dálki A. | |
12. | C1 | Breytið tölunni í C1 í 10 .
Ath: Öll gildin í dálki B breytast sjálfkrafa. |